top of page

  Umsagnir

​

 

Ég hef notið aðstoðar Steinars eftir að ég kom úr aðgerð þar sem skipt var um hnélið. Enginn vafi er í mínum huga að sá hraði bati og góði árangur við að ná orku minni á ný er að verulegu leyti að þakka þeirri meðhöndlun sem ég fékk hjá Steinari. Eitt afar skemmtilegt kom út úr þeirri meðferð.

Allt frá barnæsku hef ég verið mjög fótkaldur og stundum svo að ég þurfti að sofa í ullarsokkum. Eftir eina meðferðina hjá Steinari hitnaði ég svo á fótunum að mér fannst ég vera i heitu baði. Reyndar er sú tilfinning farin en eftir situr að ég er eðlilega heitur á fótunum og hef ekki fundið kuldatilfinninguna síðan.

Ég var einnig með mjög mikla vöðvastrengi í fótunum, af völdum Parkinsonveikinnar. Eftir meðhöndlun Steinars hafa þessir vöðvastrengir verið svo mikið minni að ég hef sára lítil óþægindi haft frá þeim og sef eins og engill allar nætur. Og orkan mín er mikið meiri og betri þannig að ég er að allan daginn án þess að þurfa að leggja mig til að hvílast.

Það er enginn vafi í mínum huga að ég á Steinari það mest að þakka hve sprækur ég er, nánast farinn að ganga hækjulaus 9 vikum eftir hnéskiptaaðgerð. Er það bataferli 4 - 6 vikum á undan áætlun lækna. Kærar þakkir fyrir mig Steinar. Þínar leiðir eru sérstakar en þær skila umtalsverðum árangri.

 

Guðbjörn Jónsson, 2. nóvember 2013

 

 

 

bottom of page